
Eftir mikinn gestagang og tilheyrandi gúmmelaði át fór maginn á mér í uppreisn... Eftir tveggja daga vanlíðan sá loks til sólar og nú er hafið smá heilsuátak á heimilinu. Hér er uppskrift af einföldu og góðu kjúklingasalati
2 kjúklingabringur skornar í bita, steikar á pönnu, bragðbætt með salt og pipar, 2 msk af mango chutney, dass af balsamic edik og svo nokkrar msk af vatni. Látið krauma þar til kjúllinn er eldaður í gegn.
1 poki rucola
hálf paprika
1 tómatur
hálft avocado
smá rauðlaukur, þunnt skorinn
Blanda smá balsamic við rucola laufin og skipti því svo á 2 diska. Dreifi svo hinu grænmetinu yfir og skelli svo kjúllanum ofan á allt saman. Bjó svo til dressingu úr sýrðum rjóma, appelsínusafa og balsamic. Við hjón notum samt svo litla dressingu að það tekur því varla að búa hana til, þannig við höfum sennilega bara salatdressingu úr flösku með næst.





























